Um félagið

Félag íslenskra bókaútgefenda
Barónsstíg 5
101 Reykjavík
Sími 511-8020 / 511-8021
netfang: fibut(hjá)fibut.is

Félag íslenskra bókaútgefenda er samtök starfandi bókaútgefenda á Íslandi og var stofnað 1889.
Félagið gætir sameiginlegra hagsmuna bókaútgefenda og vinnur að því að efla bókmenningu og bóklestur á Íslandi og auka áhuga barna og unglinga á bóklestri. Félagið gefur árlega út ritið Bókatíðindi með kynningu á helstu útgáfubókum ársins sem útgefendur telja eiga erindi við almenning. Bókatíðindi koma út í nóvember og er dreift á hvert heimili í landinu.
Félagið veitir Íslensku bókmenntaverðlaunin árlega og eru fimmtán bækur tilnefndar til verðlaunanna 1. desember ár hvert, fimm í flokki fagurbókmennta, fimm í flokki fræðirita og bóka almenns efnis og fimm í flokki barna- og unglingabóka. Verðlaunin sjálf eru veitt eigi síðar en 15. febrúar næsta ár. Þau nema nú einni milljón króna í hverjum flokki, auk þess sem verðlaunahafi fær fagran verðlaunagrip.
Bókamarkaður félagsins er haldinn árlega í febrúar-mars.
Bókamessa er hefur verið haldin eina helgi í nóvember frá árinu 2011 í samstarfi við Reykjavík Bókmenntaborg. Þar kynna útgefendur ný verk og boðið er upp á fjölbreytta dagskrá í tengslum við bækurnar.
Félag íslenskra bókaútgefenda hefur samstarf við önnur félagasamtök sem vinna að bókmenningu í landinu með skrifum, prentun, kynningu, dreifingu, sölu og umfjöllun.