ISBN

ISBN númer

Alþjóðlegum bóknúmerum, ISBN, er úthlutað hjá Landsbókasafni, Arngrímsgötu 3, 107 Reykjavík.

Helga Kristín Gunnarsdóttir sér um afgreiðslu þeirra í síma 525-5755 kl. 9-17 virka daga eða með tölvupósti, netfang This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

Gefa þarf upplýsingar um nafn útgefanda, titil bókar, útgáfuár og hver prentar. Úthlutun ISBN númera er útgefendum að kostnaðarlausu.

ISBN er alþjóðlegt bóknúmerakerfi sem gefur til kynna í tölum land, útgefanda og titil þannig að unnt er að panta bók eftir kerfinu hvar sem er í heiminum. ISBN númerin eru undirstaða strikamerkja á bókum sem nauðsynleg eru til rafrænnar skráningar á lager og sölu útgáfufyrirtækja og verslana.

Nánari upplýsingar má einnig finna hér: https://landsbokasafn.is/index.php?page=isbn-numer