Framlagning bóka til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og Blóðdropans 2026
Útgefendur eru vinsamlegast beðnir um að tilkynna bækur til framlagningar hér: skráning bóka.
Dómnefndareintök:
Skila þarf þemur endanlega fullbúnum eintökum framlagðra bóka fyrir dómnefnd til eignar fyrir 1. desember. Þetta á einnig við þó að handriti hafi þegar verið komið til dómnefndar á öðru formi. Skila þarf fimm fullbúnum eintökum til viðbótar fyrir lokadómnefnd, hljóti bók tilnefningu. Dómnefndareintök eru hluti af þátttökukostnaði og ekki endurkræf. Tekið er við dómnefndareintökum á skrifstofu félagsins, Barónsstíg 5, 2. hæð.
Verðskrá vegna framlagningar bóka til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og Blóðdropans:
- 3 dómnefndareintök eða PDF sem berst í ágúst kr. 30.000,-
- 3 dómnefndareintök eða PDF sem berst í september kr. 33.500,-
- 3 dómnefndareintök eða PDF sem berst í október kr. 44.000,-
- 3 dómnefndareintök eða PDF sem berst fram til 14. nóvember kr. 55.000,-
Senda má PDF skjöl á netfangið
Frestur til að tilkynna bækur til framlagningar er til og með 2. nóvember 2026.